news

Frá Reyniholti - Öðlingaseli ;)

06 Des 2018

Hæ, hæ.

Í síðastu viku byrjaði ný stelpa hjá okkur hún Emma Dóra og við bjóðum hana velkomna í elsta hópinn í Lyngholti.


Við byrjuðum desember á því að fara í útikaffihús ásamt vinum okkar í 8 bekk. Við fórum í gönguferð, stoppuðum hjá jólatrénu, sungum og dönsuðum þar. Síðan fengum við okkur kakó og pipakökur.


Á hverju morgni er jólasamvera hjá okkur. Við setjumst niður, kveikjum á kerti, syngjum jólalög saman og lesum póst sem koma frá vinum okkar í fjöllunum- Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum. Allir eru forvitnir hvað kemur næst í skilaboðunum. Það er mikil spenna inn á deild.


Við erum mjög dugleg að gera jólaskraut og jólagjafir.


Kveðja, Reyniholt