news

Fréttir frá Asparholti

30 Apr 2018

Hæ hó.

Frá okkur í Asparholti er allt gott að frétta. Við erum orðin svo spennt að fá vorið og sumarið, þið trúi því ekki.

Síðustu vikur hafa verið góðar. Við erum á fullu að undirbúa sumarhátíðina, flest öll listaverk að verða klár og erum byrjuð að æfa lagið sem við ætlum að flytja fyrir vini og ættingja.

Myndsmiðjan kom í síðustu viku og smellti einni hópmynd af okkur, flest allir settu upp sparibrosið. Það verður gaman að sjá útkomuna.

Annars er okkar daglega rútína best.

Erum mikið úti, förum í gönguferðir og hittum vini okkar af hinum deildunum úti í garði.


Systur Ása og Ísis.

Bíóstund.

Freyja Sigríður og Kacper

Máni og Tiga.