news

Fréttir frá Asparholti

13 Jan 2017

Sæl öll.

Við erum búin að eiga góða daga undanfarið í Asparholti, við höfum brallað margt bæði inni og úti í snjónum þegar hann loksins kom.

Í vikunni vorum við m.a. að læra upphafsstafinn okkar, spjalla um táknin, telja, klippa og þræða, í salnum, í frjálsum leik og fleira og fleira. Við fórum einnig á bókasafnið sem nýtur alltaf mikilla vinsælda hjá börnunum.

Við höfum fáar myndir sett inn í vikunni vegna tæknilegra örðugleika en það stendur til bóta og þær munu koma inn fljótlega.

Góða helgi :)

Kveðja úr Asparholti