news

Fréttir frá Asparholti.

13 Apr 2018

Heil og sæl.

Af okkur er allt gott að frétta. Apríl mánuður orðinn hálfnaður og vorið er handan við hornið.

Við í Asparholti erum dugleg úti, fórum í göngu niður á Hermes, alltaf gaman að fara þangað.

Við erum mikið úti að brasa, við erum t.d farin að huga að vorverkunum, sópuðum sandinn af stéttinni í gær.

Við notum salinn mjög mikið, erum virkilega heppin að hafa svona greiðan aðgang að honum.

Við byrjum alltaf nýja viku á listastarfi og er það alltaf jafn skemmtilegt, að mála og skapa með allskonar liti og efnivið.

Okkur finnst mjög gaman að syngja og syngjum tvisvar á dag, annan hvern föstudag hittumst við svo inni í sal ásamt hinum deildunum og þenjum raddböndin.

Hafið það sem best alltaf.

Kv Asparholt