news

Fréttir úr Birkiholti

20 Mar 2018

Góðan dag,

úr Birkiholti er allt gott að frétta. Við fengum nema til okkar sem heitir Davíð, allir voru mjög ánægðir með hann :) Það eru búnar að vera breytingar á starfsfólki hjá okkur en Friðbjörg fór frá okkur á aðra deild og kom hún Kasia til okkar í staðinn :)

Við erum búin að vera mikið úti að leika, það er búið að vera rosa gaman að geta loksins farið aftur að moka í sandkassanum. Krakkarnir eru búin að vera að æfa sig í að klæða sig sjálf í og úr útifötunum og hefur það gengið ágætlega

Á hverjum miðvikudegi eigum við salinn og förum í íþróttir fyrir hádegi.

Í listastarfi höfum við verið að föndra fyrir páskana meðal annars listaverk úr eggjaskurni. Við erum að læra stærðfræði í gegnum numicon, þar lærum við að telja og skoðum formin


Kveðja úr Birkiholti