news

Fréttir úr Furuholti

15 Jan 2018

Góðan dag,

Þann 7. janúar áttu þau Þóroddur Björn, Björg Inga og Viktoría Von 4. ára afmæli og óskum við þeim til hamingju með daginn sinn.

Við reynum að fara alla daga út að leika og skoða náttúruna, fyrri part síðustu viku var þó unadantekning á því vegna ástands á lóðinni (mikill klaki og hálka).

Krakkarnir eru að æfa gripið sitt á blýantinum og eru að lita og mála svo flott listaverk í leiðinni.

Einnig er krökkunum skipt í minni hópa til að leika sér í og rúlla svo á stöðvum, finnst þeim það mjög gaman. Við förum í salinn á fimmtudögum og erum að læra nýja leiki, allskonar æfingar og förum í þrautabrautir og frjálsan leik.

Svo eru krakkarnir mjög duglega að æfa sig að syngja lög sem tengjast þorranum.

Kveðja Furuholt