Fréttir úr Lundarseli
23 Apr 2018
Góðan dag.
Að sjálfsögðu er allt gott að frétta af okkur í Lundarseli, það er margt skemmtilegt búið að gerast hjá okkur í apríl og hér er brot af því.
Hann Jón Hafsteinn okkar varð 5 ára 4. apríl og viljum við byrja á því að óska honum innilega til hamingju með daginn sinn.
Í kjölfari af afmælinu hans fórum við að ræða um mismunandi leiðir til að halda upp á afmæli og datt okkur þá í hug að halda smá dansparty sem að allir höfðu gaman af.
Veðrið er búið að vera þokkalegt í apríl og ákváðum við einn daginn að hafa morgunleikfimi úti, þegar leikfiminni var lokið fórum við í göngutúr út á bryggju og enduðum svo á ð fá æðislegan gest til okkar í Lundarsel, en það var hann Veigar okkar.
Við erum að venju búin að föndra alveg heilan helling.
Svo erum við líka byrjuð að prófa aðrar tæknir í málörvun og prófuðum við síðast að fara í veiðimann með orðaspilum.
Síðast ekki síst þá fórum við í ruslaleiðangur í tilefni af degi jarðar sem var í gær og við týndum helling af rusli.
Þangað til næst.
Kær kveðja úr Lundarseli.