news

Furuholt

22 Okt 2021

Af okkur í Furuholti er allt gott að frétta, við höfum mikið að gera eins og alltaf. Það er mjög gott og gaman að fara í gönguferð sem við gerum í hverri viku og höfum við farið bæði niður á andarpoll og athuguðum við hvort við fyndum einhver síli þegar farið var síðast, eins höfum við farið i Rafstöðvargilið og skemmt okkur vel á báðum stöðum.

Það er allta jafn gaman að fara í dans en það hafa allir svo mikið að gera við að dansa að ekki er mikið af myndum teknar en nokkrar eru þó til.

Listastarf er alltaf mjög skemmtilegt og hanga listaverk í gluggum Furuholts, síðan njótum við mynda á veggjum inni.

Við erum alltaf á fullu í bæði ART og PALS, svo er frjálsi leikurinn í hávegum hjá okkur sem og útivist.