news

Furuholt í göngutúr

31 Ágú 2018

Undanfarið hafa Furuholtsnemendur verið að aðlaga sig að nýrri deild, kynnast nýjum kennurum og nemendum. Við höfum því notað tímann vel og verið mikið í frjálsum leik innan dyra og utan. Eins og sjá má á myndunum fórum við líka í gönguferð um nágrennið þar sem við kynnumst okkar nánasta umhverfi. Hvað er þar að finna? Við komumst að því að við þurfum ekki að fara langt frá leikskólanum til að finna eitthvað spennandi.

Fleiri myndir eru á myndasíðunni