news

Greniholts fréttir

21 Feb 2018

Heil og sæl

Af okkur i Greniholti er heil mikið að frétta, við erum MJÖG dugleg að drifa okkur út og taka stöðuna á veðrinu.

Söngur og hreyfing er uppá pallborði hjá okkur, við tökum lagið á alveg ótrúlegustu stöðum.

Gulur hefur verið liturinn í febrúar, við máluðum glaðlegar sólarmyndir, síðan örkuðum við niðri í Mola og hengdum upp.

Öskudagurinn var með hefðbundnum hætti búningar, slegið í tunnu og tjúttað í salnum.


Við þökkum öllum flottu konunum sem komu í konudagskaffið til okkar.

Kveðja frá Greniholti :-)