news

Hertar sóttvarnareglur í leikskólum

26 Mar 2021

Allir leikskólar munu verða opnir, en ljóst er að tillögurnar munu hafa áhrif á starfsemi þeirra.

Foreldrar eiga til að mynda að vera með grímur þegar þeir koma inn á lóð leikskólans þar sem oft er ekki gætt að 2 ja metra reglunni.

Ef fólk á þess kost að hafa leikskólabörn heima til að létta undir með starfsemi leikskólanna er slíkt vel þegið.

Unnið er að útgáfu reglugerðar varðandi skólastarf eftir páska og munu tilkynningar varðandi breytingar á því verða gefnar út um leið og reglugerðin liggur fyrir.