news

Páskafréttir frá Birkiholti

12 Apr 2017

Góðan daginn.

Í enda Mars héldum við búningadag sem var mjög gaman og við fengum hamborgara í hádegismatinn :D namminamm!
Við erum búin að vera á fullu að undirbúa páskana sem eru framundan, bjuggum til páskaskraut í listastarfi sem við settum í hólfin okkar í vikunni :)

Jón Hafsteinn varð 4ja ára þann 4.apríl og óskum við honum innilega til hamingju með afmælið :)

Við erum með gönguferðir á hverjum þriðjudegi sem við förum í sama hvernig viðrar, það er bara svo gaman að gera öðruvísi og fá að komast aðeins lengra en á leikskólalóðina :) Annars er ekki mikið að frétta af okkur. Við vildum bara koma og óska ykkur öllum gleðilegra páska og hafið það sem allra best :) Sjáumst svo hress og kát þriðjudaginn 18.Mars

Páskakveðjur frá öllum í Birkiholti