news

Skólabyrjun

24 Ágú 2018

Þá eru nýjir nemendur að byrja hjá okkur í Lyngholti. Aðlögun er í Aspar-, Birki-, Furuholti og Lundarseli. 95 nemendur hjá okkur þessa dagana.

Þær eru farnar aftur í skólana sína Fjóla, Fanney og Ólöf Sól þökkum þeim enn og aftur fyrri gott samstarf.

Hvet nýja foreldra til að skoða inn á Facebook en þar er síða sem heitir Foreldrar Lyngholts og óska eftir aðgangi þar inni. Þar á sér stað góð og gagnleg umræða um skólastarfið skilst mér.
Þá fer líka að líða að aðalfundi foreldrafélagsins og verður hann auglýstur von bráðar. Þá er foreldrafélagið einnig að skipuleggja fræðslu sem foreldrum á að standa til boða. Nóg um að vera framundan.