news

Sumarleyfi 2017

12 Jan 2017

Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2017

Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra með tillögu að sumarleyfum leikskóla í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í minnisblaðinu er lagt til að leikskólarnir loki sem hér segir:

Stöðvarfjarðarskóli 13.07-09.08

Kæribær 13.07-09.08

Lyngholt 19.07-15.08

Dalborg 13.07-09.08

Eyrarvellir 29.06-26.07

báðir dagar meðtaldir hjá öllum skólum.

Þá er athygli vakin á því að samkvæmt reglum um leikskóla í Fjarðabyggð geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.