Uppeldi til ábyrgðar

Leikskólinn Lyngholt tileinkar sér vinnuaðferðir sem eru í anda Uppeldi til ábyrgðar.

Meginatriði hugmyndafræðinnar er að kenna börnum sjálfsaga, sjálfsstjórn og ýta undir sjálfstraust.

Uppbygging sjálfsaga leggur áherslu á jákvæð samskipti, ábyrgð og virðingu.

Uppbyggingarstefnan þjálfar börnin í að byggja upp skýra sjálfsmynd og sýna sjálfum sér og öðrum virðingu með hegðun sinni.

Það styrkir börnin að hafa sameiginlega mynd um góð samskipti í leikskólanum.

Uppbygging byggir á skýrum mörkum sem þarf að standa vörð um:

Fáar skýrar reglur sem allir geta sameinast um. Við vinnum með reglurnar bæði heima og reglurnar í leikskólanum.

Við ræðum við börnin um reglurnar og ófrávíkjanlegu reglurnar og viðurlögin þegar reglur eru brotnar.

Áherslu á samskipti sem ýta undir frelsi en gefa jafnframt skýr mörk.

Munum að við getum aðeins stjórnað okkur sjálfum og engum öðrum!


Samkvæmt uppbyggingarstefnunni hefur barnið fimm grunnþarfir þ.e. að lifa við öryggi, þörf fyrir ást og umhyggju, eigið áhrifavald, gleði og ánægju og valfrelsi og sjálfstæði.

Við vinnum með börnunum út frá þörfinni um ást og umhyggju, gleði og ánægju, frelsi, og áhrifavaldi

Fimm stöður stjórnunar

Sjálfsstjórnarkenningin e. William Glasser. Þú getur ekki stjórnað öðrum en þú getur stjórnað sjálfum þér.

Fimm leiðir stjórnunar:

1. Með því að refsa eða hóta refsingu (punisher).

2. Með því að vekja sektarkennd (guilter).

3. Með því að koma sér í mjúkinn hjá viðkomandi (buddy).

4. Með því að benda á reglur og sýna festu (monitor).

5. Með því að vekja til umhugsunar um lífsgildi og þarfir og leita lausna ti að mæta hvoru tveggja (manager).