news

Forseti Íslands í heimsókn

10 maí 2023

Við í Lyngholti fengum góða gesti til okkar í dag. En Guðni Th. Jóhannesson kom í heimsókn ásamt Jónu Árný Þórðardóttir, bæjarstjóra Fjarðabyggðar og fleiri góðum gestum.
Þeim var boðið á söndfund og færðum við Guðna þar poka með einkunnarorðum skólans. Í pokanum var svo sokkapar og Fjarðabyggðarbuff þar sem við vitum að Guðni er mikill áhugamaður um slíka hluti. Þá voru líka tvær ljóðabækur eftir fyrrverandi nemendur Lyngholts. Síðan skoðaði hópurinn skólann okkar og hitti nemendur og starfsmenn á sínum deildum. Fleiri myndir eru inn á svæðum deilda.