news

Kvennaverkfall - Föstudaginn 24. október

23 Okt 2025

Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni hafa samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar boðað til samstöðufunda víða um land og mun sameiginlegur samstöðufundur á Austurlandi að þessu sinni vera á Egilsstöðum.

Fjarðabyggð styður jafnréttisbaráttu kvenna og kvár oghvatti bæjarráð á dögunum stjórnendur til að leitaallra leiða til að konur og kvár geti lagt niður störf og tekið þátt í skipulagðri dagskrá þennan dag án skerðingar á launum.

Þetta munóhjákvæmilega hafa áhrif á þjónustu sveitarfélagsins, og mun þjónusta skerðasteða vera með breyttu sniði að einhverjum eða öllu leyti þennan dag í flestum stofnunum.

Vegna þessara aðgerða mun eftirfarandi stofnanir þurfa að loka:

Engin starfsemi mun verða í grunnskólum Fjarðabyggðar eftir kl. 13:00

Engin starfsemi mun verða í leikskólum sveitarfélagsins eftir kl. 14:00

Skólafrístundir verða lokaðar á öllum stöðum.

Áhrifa af þessum aðgerðum mun einnig gæta í öðrum stofnunum, en ekki mun koma til frekari lokana enda hluti af þjónustu og starfsemi sveitarfélagsinsmeð þeim hætti að ekki er hægt að leggja hana alfarið niður, til að tryggja að velferð, öryggi og heilsu fólks sé ekki stefnt í hættu.