news

Tónleikar leikskólabarna

13 Apr 2026

Við í Furuholti höfum verið að æfa lög eftir Dr. Gunna í allan vetur fyrir Söngvavor tónleika.

Nú er loksins komið að tónleikunum! Þeir verða haldnir í Eskifjarðarkirkju næstkomandi þriðjudag, þann 21. apríl kl. 15:30. Þar munu börnin syngja nokkur lög ásamt fleiri jafnöldrum sínum úr Fjarðabyggð.

Börn og starfsfólk frá Furuholti munu fara frá leikskólanum með rútu, því er mikilvægt að bílstólar eða sessur barnanna fylgi með þeim í leikskólann næsta þriðjudag.

Gert er ráð fyrir því að börn fari heim með foreldrum eða forráðamönnum að tónleikunum loknum, ef það gengur ekki upp má hafa samband og við leysum það ?

Börn sem ekki hafa vistun allan daginn fá að vera lengur þennan dag svo öll börn fái að njóta sín á tónleikunum.