news

Gjöf til skólans frá Kvenfélagi Reyðarfjaðar

13 Feb 2024

Harpa Vilbergsdóttir kom hingað í skólann í desember síðast liðinn og færði skólanum þessi fínu vöfflujárn að gjöf frá Kvenfélagi Reyðarfjarðar. Færum við kvenfélagskonum miklar þakkir fyrir að hugsa alltaf svona hlýtt til skólans. Þá var veitt vilyrði að keyptir yrðu 50 stk af Blæ böngsum sem kvenfélagið ætlar einnig að styrkja skólann um.