news

Skráningadagar í mars

09 Feb 2024

Minnum á að þann 20 febrúar, í síðasta lagi, þurfa foreldrar að vera búnir að skrá börn sín í skólann dagana í Dymbilvikunni, 25 - 27 mars næstkomandi samkvæmt reglum um skráningadaga.

Skráningardagar:

Í nýrri gjaldskrá er gert ráð fyrir að foreldrar skrái börn sín sérstaklega í vistun á dögum sem kallaðir eru “skráningardagar”, að öðru leyti er litið svo á að barnið sé í fríi á þessum dögum.

Dagsetningar á þessum dögum munu sveiflast á hverju ári en á árinu 2024 eru þeir eftirfarandi:

  • 25. – 27. mars (3 dagar í dymbilviku)
  • Vetrarfrí að hausti
  • 23. desember (mánudagur)
  • 27. desember (föstudagur)
  • 30. desember (mánudagur)

Foreldrar þurfa að vera búnir að skrá börnin sín í vistuna á þessa daga í síðasta lagi 20. í mánuðnum á undan.