news

Fréttir úr Lundarseli

16 Jan 2018

Góðan dag,

Við erum búin að koma okkur vel fyrir á nýju deildinni okkar og það er allt gott að frétta af okkur. Við höfum haft það mjög huggulegt og erum búin að gera ýmislegt skemmtilegt fyrstu vikurnar.


Við erum búin að vera mjög dugleg að teikna og mála, svo erum við líka búin að vera að æfa okkur í að skrifa nafnið okkar.

Við erum búin að vera að ríma og það hefur gengið vel, svo fórum við líka í stærðfræði og okkur fannst það mjög skemmtilegt.



Við erum auðvitað líka búin að vera dugleg að leika okkur og nýta flotta plássið sem við höfum.
Okkur er skipt í litla hópa sem að rúlla á milli stöðva og við erum alveg búin að fatta hvernig það virkar og vitum hvert við eigum að fara næst, ef að við erum mjög spennt fyrir næstu stöð erum við dugleg að spyrja að því hvenær við eigum að skipta.

En okkur finnst sérstaklega skemmtilegt þegar að við fáum að leika okkur í flottu rennibrautinni sem að við erum með á deildinni okkar.


Meira síðar,

Kveðja frá Lundarseli